Ívar Guðmunds
Ívar Guðmunds
10:00 - 12:00

Núna

PREFAB SPROUT

Cars And Girls

Næst

The Cure

Boys Don't Cry

Hlusta í beinni

Þættir

Bakaríið

Ása Ninna og Svavar Örn sjá um Bakaríið á Bylgjunni á laugardagsmorgnum. Þau fara yfir málefni líðandi stunda á léttan máta og fá til sín góða gesti.

Bítið

Heimir Karlsson, Lilja Katrín og Ómar Úlfur vakna eldsnemma með hlustendum Bylgjunnar alla virka morgna. Fylgstu með fréttum og taktu púlsinn á þjóðmálunum, færðinni, veðrinu og íþróttunum strax í bítið.

Bylgjan

Alls kyns upptökur og viðtöl af Bylgjunni.

Bylgjan órafmögnuð

Bylgjan órafmögnuð er árleg tónleikaröð Bylgjunnar þar sem okkar helsta tónlistarfólk kemur fram og spjallar við Völu Eiríks um sögur á bakvið lögin.

Fréttir

Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar flytur fréttir allan sólarhringinn.

Helgin með Hvata

Skemmtilegir sunnudagar með Hvata. Alla sunnudaga milli 12:20 og 16:00

Með kærri kveðju

Ástarlög í bland við kveðjur frá hlustendum til ástvina sinna og fallegar sögur af ást og rómantík

Sprengisandur

Vönduð og skelegg umræða um landsmál og pólitík á Bylgjunni.

Stjörnuspeki

Gunnlaugur Guðmundsson Stjörnuspekingur, Hera Gísla og Ásgeir Kolbeins með skemmtilegan og fróðlegan þátt

Eldri þættir

Björgvin Halldórsson sextugur

Sérþáttur Bylgjunnar um Björgvin Halldórsson í tilefni af sextugsafmæli hans. Þorgeir Ástvaldsson ræðir við hann. Þátturinn var sendur út 2011.

Bylgjulestin

Lestarstjórarnir Vala Eiríks, Svali, Erna Hrönn og Ómar Úlfur verða í beinni útsendingu alla laugardaga frá 12-16, á Bylgjunni. Bylgjulestin. Björt og brosandi um land allt, í samstarfi við Nóa Kropp, Nettó, Appelsín án sykurs, Heklu, Samgöngustofu, Vodafone og Orku Náttúrunnar.

Ellen í 40 ár

Sérþáttur Bylgjunnar um Ellen Kristjánsdóttur. Ívar Guðmundsson ræðir við Ellen um tónlistarferilinn sem spannar fjörutíu ár. Þátturinn var sendur út 2019.

Ellý Vilhjálms

Þorgeir Ástvalds ræðir við Ragga Bjarna og fleiri um Ellý Vilhjálms og tónlist hennar. Einnig er notast við viðtal sem Þorgeir átti við Ellý árið 1993. Þátturinn var fluttur á Bylgjunni 2012 en þá voru haldnir minningartónleikar um Ellý.

Hemmi Gunn

Upptökur af fjölmörgum frábærum þáttum með Hemma Gunn á Bylgjunni.

Jólagleði Þorgeirs

Þorgeir Ástvalds tekur skemmtileg viðtöl við Íslendinga í öllum heimshornum. Þættirnir voru á dagskrá Bylgjunnar 2010.

KK sextugur

Sérþáttur Bylgjunnar um KK í tilefni af sextugsafmæli hans. Þátturinn var sendur út um jólin 2015.

Laddi sjötugur

Heimir Karlsson ræðir við Ladda um tónlistina hans í tilefni af sjötugsafmælinu. Þættirnir voru fluttir á Bylgjunni um jólin 2016.

Leikið um landið

Í leiknum Leikið um landið skorar starfsfólk Bylgjunnar, FM957 og X977 á hvert annað í skemmtilegum þrautabrautum víða um land.

Leitin að peningunum

Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.

Mannakorn 40 ára

Sérþáttur Bylgjunnar um Mannakorn í tilefni 40 ára afmælis hljómsveitarinnar. Þátturinn var fluttur á Bylgjunni árið 2014.

Maskínan

The Hlö Machine var með Maskínuna á Bylgjunni 2014.

Nýdönsk 25 ára

Heimildarþáttur Bylgjunnar um hljómsveitina Nýdönsk. Þeir félagar segja sögur sínar óáreittir, og fara á kostum, sögur sem aldrei hafa verið sagðar, sögur sem oft hafa verið sagðar, lög sem allir hafa heyrt en enginn veit hvernig urðu til. Þátturinn var fyrst fluttur 2012.

Páll Óskar fimmtugur

Sérþáttur Bylgjunnar um Pál Óskar í tilefni af fimmtugsafmæli hans. Ívar Guðmundsson ræðir við hann. Þátturinn var sendur út 2020.

Pétur Kristjánsson - minningarþáttur

Bylgjan minnist Péturs Kristjánssonar. Þorgeir Ástvaldsson ræddi við samferðamenn hans í tónlistinni, Bjartmar Guðlaugsson og félaga hans úr hljómsveitinni Svanfríði. Íris, dóttir Péturs, sagði frá pabba sínum. Viðtal við Pétur sem Ragnar Bjarnason tók árið 1997 er einnig fléttað inní þáttinn. Þátturinn er frá 2012 þegar Pétur hefði orðið sextugur

Sálin í 25 ár

Sérþáttur Bylgjunnar um Sálina hans Jóns míns í tilefni 25 ára afmælis hljómsveitarinnar. Þráinn Steinsson tók meðlimi sveitarinnar í spjall í Betri Stofu Bylgjunnar. Þátturinn var fluttur á Bylgjunni árið 2013.

Sigga Lund

Sigga Lund sér um ljúfu stemninguna á Bylgjunni.

Simmi og Jói

Upptökur úr vinsælum þætti Simma og Jóa á Bylgjunni.

SSSól 30 ára

Sérþáttur Bylgjunnar um hljómsveitina SSSól í tilefni af þrjátíu ára starfsafmæli hennar. Þátturinn var sendur út 2017.

Stál og hnífur

Bubbi Morthens ræddi við fjölmarga Íslendinga í þáttunum Stál og hnífur.

Stjórnin 30 ára

Sérþáttur Bylgjunnar um hljómsveitina Stjórnina í tilefni af þrjátíu ára starfsafmæli hennar. Þátturinn var sendur út 2018.

Stuðmenn í 50 ár

Sérþáttur Bylgjunnar um Stuðmenn í tilefni af 50 ára afmæli sveitarinnar. Þorgeir Ástvaldsson ræðir við Jakob Frímann Magnússon. Þátturinn var sendur út 2020.

Todmobile 25 ára

Sérþáttur Bylgjunnar um Todmobile í tilefni af 25 ára afmæli hljómsveitarinnar. Þátturinn var sendur út árið 2013.

Valgeir Guðjónsson sextugur

Sérþáttur Bylgjunnar um Valgeir Guðjónsson í tilefni af sextugsafmæli hans. Þorgeir Ástvaldsson ræðir við hann um ferilinn. Þátturinn var sendur út 2012.

Veistu hver ég var?

Siggi Hlö stjórnar einum vinsælasta útvarpsþætti landsins. Aðalsmerki þáttarins er tónlist frá níunda áratug síðustu aldar. Eitís.

Zúúber

Svali, Gassi og Sigga voru með Zúúber á Bylgjunni á föstudögum.

Þorsteinn Eggertsson sjötugur

Þorgeir Ástvalds ræðir við eitt mesta textaskáld íslenskrar dægurtónlistar, Þorsteinn Eggertsson, í tilefni þess er hann varð sjötíu ára. Þorgeir ræðir við Þorstein um ferilinn og spilar marga af hans þekktustu textum. Þátturinn var fluttur á Bylgjunni 2012.